"Mínar síður" hjá Verði eru einn helsti og mikilvægasti snertiflötur viðskiptavina við fyrirtækið. Við hönnun á þeim lögðum við áherslu á að hafa síðuna aðgengilega og notendavæna þar sem notendur gætu skoðað, breytt og bætt sínar tryggingar.
Vörður ætlar sér að verða fremstir í stafrænum lausnum meðal tryggingafyrirtækja á Íslandi.Til að ná því markmiði var nauðsynlegt að nýjar og endurbættar Mínar síður settu notandann í forgang. Þarfir notandans og væntingar verða þar með lykilatriði við hönnun kerfisins.
Á mínum síðum getur þú gert allt mögulegt sem viðkemur þínum tryggingum. Þú getur skoðað, breytt og bætt þínar tryggingar án þess að ræða við sölumann eða ráðgjafa. Notandinn er á bakvið stýrið.
Hönnunin er einföld, stílhrein og kröftug blanda af skýrum teikningum og skiljanlegum ferlum. Ferlarnir voru prófaðir í þaula af notendum og sérfræðingum til að skapa bestu mögulegu upplifun. Betri upplifun skilar sér í frekari notkun sem að sama skapi skilar sér í auðveldari sölu fyrir Vörð.
Vörður vill með þessum breytingum komast í fremstu röð tryggingarfélaga á Íslandi. Framtíðin liggur í snjöllum sjálfvirkum lausnum sem gefa notandanum tækifæri á að stjórna sínum kjörum.
Alhliða breytingar á vefveru Varðar með samræmdu hönnungarkerfi, öflugum rafrænum ráðgjafa og greinargóðum Mínum síðum hafa aukið val viðskiptavina og minnkað álag á mannuð Varðar.
færri heimsóknir.
færri heimsóknir.
fjölgun á innskráningum.
færri hringingar.