Firmus er nýtt bókhalds og ráðgjafa fyrirtæki sem byggir á góðum grunni og reynslubanka. Markmið okkar var að skapa bæði vörumerki og vefsíðu sem lýsti áherslum og kjarnastarfsemi vörumerkisins á skýran og yfirgripsmikinn máta.
Vörumerkið var glænýtt og skapað með stafræna hönnun og upplifun í huga. Markmið vörumerkisins var fyrst og fremst að skapa traust og skera sig úr. Firmamerkið er látlaust á meðan litir og letur skapa mikilvæg hugrif trausts og stöðugleika.
Vörumerki Firmus á að magna stærð og sögu fyrirtækisins með sterkum litum og örruggum línum. Til að ná þeim áhrifum koma litirnur úr náttúru Íslands, fjöllum, vötnum og litrófi flórunnar.
Vefsíðunni er ætlað að vera fyrsta og mikilvægasta snerting viðskiptavinarins við Firmus. Þar getur viðskiptavinurinn fundið upplýsingar um alla þjónustu Firmus og starfsmenn fyrirtækisins. Notandinn fer í gegnum ákveðna vegferð í síðunni sem leiðir hann áfram til samskipta.
Síðan virkar að sjálfsögðu í hvaða skjá sem er, en tekið var sérstakt tillit til þess hvernig hún myndi virka á símum og smærri skjám.